Sjötta umferð í púttmótaröð GA í kvöld

Þá er komið að sjötta kvöldi í Púttmótaröð GA en það er í kvöld.

Púttað er á milli 20-22 í kvöld og er öllum frjálst að mæta - frítt er í púttmótaröðina í ár.

Eftir fyrstu fimm mótin eru Ingi og Sigþór efstir á 138 höggum og næst koma Lárus og Kara á 143 höggum. 

Leikinn er betri bolti, (betra skorið á holuna telur), tveir saman í liði, sama lið allt mótið.
Leiknar eru 36 holur í hvert skiptið og telja báðir hringirnir
Alls verða 7 dagar (skipti) í undankeppninni og munu 5 bestu dagar (5x36 holur) hvers liðs telja.

Sjáumst í kvöld!