Þá er febrúarmótið í Vetrarmótaröð GA, Höldur X Skógarböðin hafið og leikið er á hinum stórskemmtilega Hualalai resort velli í Hawaii. Eins og áður fá kylfingar eins margar tilraunir og þeir vilja til að reyna við verðlaun en veitt verða verðlaun fyrir efstu þrjú sætin í höggleik með og án forgjafar í febrúar mótinu.
Í mótinu í janúar voru 62 kylfingar sem tóku þátt og var mikil spenna á toppnum í báðum flokkum. Tveir kylfingar voru á sama skori á toppnum í báðum flokkum og er þá talið til baka.
Verðlaunahafar geta nálgast verðlaun sín í golfbúð GA en þeir eru:
Höggleikur m/fgj.
1.sæti: Kjartan Sigurðsson -6
2.sæti: Halla Sif -6
3.sæti: Jón Helgi Pétursson -5
Höggleikur án/fgj.
1.sæti: Arnar Freyr Viðarsson -8
2.sæti: Ágúst Már Þorvaldsson -8