Fastir tímar í golfhermum GA

Þá höfum við hafist handa að taka við bókunum í fasta tíma í golfhermum GA í vetur. 

Verðskrá liggur fyrir og er svohljóðandi:
Fastir tímar fyrir klukkan 14:00 alla virka daga: 4.500kr klst.
Fastir tímar eftir klukkan 14:00 virka daga og um helgar: 5.900kr 
GA félagar fá 25% afslátt af föstum tímum.

Þeir sem hafa áhuga á að tryggja sér fasta tíma í golfhermum í vetur mega senda tölvupóst á jonheidar@gagolf.is fyrir frekari upplýsingar.

Við bjóðum upp á greiðsludreifingu á gjaldinu í fasta tíma, hægt að borga mánaðarlega af tímunum. Það sem gott er að komi fram í fyrirspurninni er:
Hvaða dag viljiði fara og klukkan hvað?
Hvenær viljið þið hafa fyrsta tímann og síðasta?
Hversu margir kylfingar eru?
Hvernig viljið þið hátta greiðslunni?

Hlökkum til að taka á móti ykkur í vetur í stórglæsilegri inniaðstöðunni okkar á Jaðri.