Fasteignasala Akureyrar Open á laugardag

Á laugardaginn næsta verður haldið í fyrsta sinn á Jaðarsvelli "Fasteignasala Akureyrar Open" en mótið er höggleiksmót og er keppt bæði í höggleik með og án forgjafar og veitt verðlaun fyrir efstu þrjú sætin bæði í karla- og kvennaflokki. 

Mótið verður stórglæsilegt og erum við hjá GA fullviss um að okkar menn á Fasteignasölu Akureyrar munu gera allt sem í þeirra valdi stendur til að mótið verði sem flottast.

Skráning fer fram hér: https://tourentry.golfbox.dk/?cid=2824104 eða í síma 462-2974

Rástímar eru frá 8:30-13:00 og er nóg laust í mótið, mótsgjald er 5.000kr