Faldo Series unglingamótaröðin

Hafþór Ingi og Samúel tóku þátt frá GA í flokki U21.

Hafþór endaði í 5 sæti , lék hanna á 77 og 78, Samúel spilaði á 79 og 82 og endaði í 9 sæti.

Faldo Series er unglingamótaröð sem hófst að frumkvæði Nick Faldo árið 1996 og er nú orðinn aðalvettvangur fyrir unga afrekskylfinga í Bretlandi og Asíu. Margir af bestu áhuga- og atvinnumönnum dagsins í dag hafa keppt á mótaröðinni og þeir sem skara framúr hafa komist í Team Faldo, sem er æfingahópur sem nýtur persónulegrar leiðsagnar Nick Faldo. Faldo Series Iceland Championship 2008 er haldið nú í þriðja sinn og hefur skapað sér sess sem flottasta unglingamót á Íslandi.

Mótið fór fram á Grafarholtsvelli.