Endurnýjað samstarf milli GA og Byko

Það er mikil ánægja hjá okkur í GA að tilkynna það að GA og Byko hafa skrifað undir áframhaldandi samstarfssamning sín á milli.

Byko hefur stutt vel við bakið á GA síðustu ár og hafa þeir hjálpað okkur með hin ýmsu mál. Því erum við afar þakklát fyrir áframhaldandi stuðning frá þeim.

Því þökkum við Byko fyrir áframhaldandi samstarf og vonum að það haldi áfram að blómstra í komandi tíð.