Á föstudaginn næsta, 1.maí, ætlum við að reyna að dúka öll grínin okkar og verja þau gegn kuldaskellinum sem er spáð um og eftir helgi.
Við byrjum klukkan 10:00 og er mæting í vélaskemmuna, margar hendur vinna létt verk og óskum við því eftir sjálfboðaliðum til að aðstoða okkur með verkefnið.
Ef einhverjir hafa tök á því að koma og aðstoða geta þeir mætt upp í vélaskemmu klukkan 10:00 á föstudaginn.