Dúddisen opnar

Dúddisen, 6 holu æfingavöllur GA opnar á morgun laugardag 8.maí 2021. Völlurinn er opinn GA félögum og biðjum við kylfinga að ganga ávallt vel um völlinn. Laga kylfu- og boltaför en völlurinn er eðlilega viðkvæmari nú á vordögum en þegar lengra inn í sumarið er komið. Við munum svo senda út frekari fréttir af vinnudegi og opnun vallar fljótlega eftir helgi.