DEMODAGUR á Arctic Open

Fimmtudaginn 21. júní og föstudaginn 22. júní verður hægt að koma í Klappir og prófa það nýjasta í kylfum frá framleiðendunum PING og Titleist.

 

Á staðnum verður sérfræðingur frá ÍsAm sem getur gefið góð ráð við val á útbúnaði.

 

Hægt verður að prófa karla- og kvennakylfur frá PING, m.a. heitustu trékylfurnar í dag G400 og nýju G700 járnin.

Vault 2.0 og Sigma G pútterlínurnar frá PING verða til sýnis ásamt Glide 2.0 fleygjárnunum.

 

Í Titleist verður í boði að prófa 718 línuna af járnum, 917 trékylfurnar og nýju SM7 fleygjárnin.

Einnig verða á staðnum nýja Scotty Cameron Select pútterlínan.

 

Demodagurinn verður í gangi á þessum tímum:

 

Fimmtudagurinn 21. júní frá 15-19

Föstudagurinn 22. júní frá 12-14

 

Hlökkum til að sjá sem flesta!