Demo dagur á morgun

DEMODAGUR á Arctic Open. 

Á morgun fimmtudag frá klukkan 12-19 verður hægt að koma í Klappir og prófa það nýjasta í kylfum frá framleiðendunum PING og Titleist.

Á staðnum verður sérfræðingur frá ÍsAm sem getur gefið góð ráð við val á útbúnaði.

Frá PING er m.a. hægt að prófa nýju G410 línuna í járn- og trékylfum ásamt að fá lánaða Sigma 2 púttera út á æfingaflöt.

Í Titleist verður í boði að prófa TS línuna af trékylfum, Scotty Cameron púttera og SM7 fleygjárn.

Hlökkum til að sjá sem flesta!