Þá hefur verið opnað fyrir rástímaskráningu á Jaðarsvöll fyrir mánudaginn næsta.
Bókaðar eru fyrri 9 og seinni 9 sér eins og félagsmenn okkar þekkja á haustin. Rástímaskráning verður með því móti fram til 24.maí þegar við byrjum bókanir á 18 holur í einu.
Rástímabókanir fyrir félagsmenn opna klukkan 20:00 með fimm daga fyrirvara í allt sumar sem þýðir að klukkan 20:00 á fimmtudagskvöldi er hægt að bóka rástíma allt fram til þriðjudags.
Í ár munum við ætlast til þess að allir sem spili Jaðarsvöll staðfesti komu sína í golfbox appinu við komu, QR kóði verður á skjá í afgreiðslu þar sem kylfingar geta skannað með stafræna kortinu sínu. Er þetta gert til að koma í veg fyrir að kylfingar séu að skrá með sér einhverja sem síðan ekki mæta og verða viðurlög fyrir misnotkun á skráningu.
Svona verða rástímaaðföngin:
12. maí : Jaðar fyrri 9 og Jaðar seinni 9 (10-18)
13.-23. maí : Jaðarsvöllur fyrri 9 og Jaðarsvöllur seinni 9 (10-18)
24.maí og áfram inn í sumarið: Jaðar
Við minnum svo á vinnudaginn í dag frá 17-20 - súpa eftir og á sunnudag frá 10-14.