Bryndís Eva Ágústsdóttir og Lilja Maren Jónsdóttir eru þessa dagana út í Kanada með stúlknalandsliði Íslands.
Þrjár stúlkur eru í liðinu en auk okkar stelpna er Embla Hrönn Hallsdóttir úr GKG.
Keppt er bæði í einstaklings- og liðakeppni en leiknar verða 72 holur af höggleik, 18 holur á dag, þar sem tvö bestu skorin hjá hverju liði telja á hverjum hring í liðakeppninni.
Bryndís var einnig í liðinu í fyrra sem náði sínum besta árangri í sögunni þegar þær enduðu jafnar í 16. sæti. Til mikils er að vinna í einstaklingskeppninni því sigurvegarinn fær keppnisrétt á CPKC Women's Open á LPGA-mótaröðinni árið 2027.
Við óskum stelpunum góðs gengis og bendum áhugasömum á að hægt er að fylgjast með gangi mála á mótinu hér