Golfklúbbur Akureyrar átti 10 keppendur í Icewear bikarnum sem haldinn var hjá GKG 4.-6. júní.
Í stúlkuflokki 15-18 ára vorum við hjá GA með þrjár stelpur í efstu fimm sætunum og gerði Bryndís Eva sér lítið fyrir og sigraði með 10 högga mun.
1.sæti: Bryndís Eva Ágústsdóttir +5 70-73-75
4.sæti: Björk Hannesdóttir +20 77-79-77
6.sæti: Lilja Maren Jónsdóttir +25 80-77-81
MC: Ragnheiður Svava Björnsdóttir +35 87-90
Í drengjaflokki áttum við sex keppendur og komust þeir allir í gegnum niðurskurð og endaði Barri Björgvinsson efstur GA pilta, jafn í 7.sæti.
T7.sæti: Barri Björgvinsson +14 73-77-77
T10.sæti: Ágúst Már Þorvaldsson +15 78-74-76
T12.sæti: Hafsteinn Thor Guðmundsson +18 74-77-80
18.sæti: Maron Björgvinsson +20 76-76-81
T20.sæti: Arnar Freyr Viðarsson +23 82-77-77
T27.sæti: Patrekur Máni Ævarsson +28 77-81-83
Flottur árangur hjá krökkunum okkar.