Bryndís Eva stigameistari í flokki 17-18 ára

Bryndís Eva er stigameistari Unglingamótaraðarinnar 2026 í flokki 17-18 ára stúlkna. 

Er þetta þriðja árið í röð sem Bryndís Eva verður stigameistari á Unglingamótaröðinni, síðustu tvö ár í flokki 15-16 ára. 

Bryndís tók þátt í öllum sjö mótum sumarsins og lauk sumrinu með 4.747 stig en baráttan var mikil því í öðru sæti var Lilja Maren úr GA með 4.597 stig. Þær stöllur spiluðu flott golf í sumar sem og Björk Hannesdóttir sem endaði í 6. sæti á stigalistanum og 3. sæti í lokamótinu sem fór fram hjá GR núna um helgina, Ragnheiður Svava endaði svo í 16. sæti á stigalista 17-18 ára stúlkna.

Í flokki 17-18 ára pilta varð Hafsteinn Thor Guðmundsson efstur GA pilta en hann endaði í 6. sæti með 2.550 stig, Patrekur Máni varð í 9. sæti með 2.114 stig og Maron Björgvinsson í 13. sæti með 1.428 stig 

Í flokki 15-16 ára pilta varð Barri Björgvinsson í 3. sæti á stigalistanum með 3.550 stig en Barri lenti í 2. sæti á lokamótinu núna um helgina og 4. sæti á Íslandsmótinu í höggleik. Arnar Freyr varð í 6. sæti með 3.163 stig, Ágúst Már í 7. sæti með 3.011 stig, Egill Örn í 11. sæti með 2.207 stig og Baldur Sam í 43. sæti með 211 stig.

Við óskum okkar kylfingum til hamingju með flott sumar og hlökkum til að fylgjast með þeim áfram á næsta ári.