Okkar kylfingur, Bryndís Eva, er um þessar mundir stödd í Portúgal á Global Junior golfmóti sem haldið er á Praia de'l Rey golfvellinum í Portúgal ásamt íslenska landsliðshópnum. Við hjá GA erum með fjóra kylfinga á mótinu en ásamt Bryndísi eru þau Lilja, Arnar Freyr og Ágúst Már að keppa.
Erfitt veður var á fyrsta keppnisdegi og bitnaði það á skori krakkana en Bryndís Eva er á toppnum eftir fyrstu tvo keppnisdagana og verður gaman að fylgjast með framgöngu hennar og krakkana okkar í dag.