Bryndís Eva lauk þátttöku á The Girls u-16 Amateur í 44. sæti eftir flottan lokahring þar sem hún spilaði á pari vallarins. Mótið fór fram á Gog Magog Old Course í Cambridge, Englandi og er þetta eitt virtasta unglingamót kvenna í heiminum.
Mótið var fyrst haldið árið 2018 og hefur síðan verið vettvangur fyrir efnilega kylfinga. Í fyrra, árið 2024, sigraði Louise Landgraf frá Frakkalandi eftir spennandi bráðabana gegn Charlotte Naughton.
Bryndís Eva spilaði hringina þrjá á samtals 13 höggum yfir pari eða 76-79-71 og lauk keppni í 44. sæti af 80 keppendum. Sigurvegarinn, Sabrina Wong, spilaði á 10 höggum undir pari vallarins.
Flottur árangur hjá Bryndísi og verður svo sannarlega gaman að fylgjast með henni í sumar.
Hér má sjá lokaniðurstöðuna í mótinu.
https://www.randa.org/is-IS/championships/the-girls-u16-amateur-leaderboard