Bryndís Eva keppir þessa dagana í einu virtasta unglingamóti kvenna í heimi sem fram fer á Englandi. Mótið fer fram dagana 25. - 26. apríl á Gog Magog Old Course í Cambridge.
Mótið var fyrst haldið árið 2018 og hefur síðan verið vettvangur fyrir efnilega kylfinga. Í fyrra, árið 2024, sigraði Louise Landgraf frá Frakkalndi eftir spennandi bráðabana gegn Charlotte Naughton.
Bryndís Eva hefur lokið tveimur hringjum í mótinu. Hún lék þann fyrri á 76 höggum eða á 5 yfir pari og þann seinni á 79 höggum eða 8 yfir pari. Við óskum Bryndísi góðs gengis á lokahringnum og hlökkum til að fylgjast með henni.
Hægt er að fylgast með stöðunni hér:
https://www.randa.org/is-IS/championships/the-girls-u16-amateur-leaderboard