Breyttur opnunartími á skrifstofu GA

Frá og með deginum í dag mun skrifstofa golfklúbbsins lengja opnunartíma sinn á kvöldin. Skrifstofan verður því opin frá 8-20 alla daga vikunnar, og kemur til með að vera það út sumarið.

Þessi breyting var gerð til að anna eftirspurn kylfinga um að hafa aðgengi að skrifstofunni á kvöldin, enda margir hverjir komnir í sumarfrí og vilja nýta sólríkar nætur norðursins á meðan tími gefst. 

Að þessu gefnu ber að minna á að vallareftirlit mun fara fram síðar á kvöldin, og hvetjum við því þá fáu sem eiga eftir að sækja pokamerkin sín að gera það sem fyrst.