Birgir V. Björnsson með kylfumælingar 6. og 7. júní og demódagar

Birgir V. Björnsson, golfkylfusmiður og golfkennari mun koma norður 6. júni og vera með mælingar á golfkylfum hjá okkur á laugardeginum og sunnudeginum. Hann verður frá 10-17 á laugardegi og 10-14 á sunnudegi. Birgir er sá færasti á sínu sviði hér á Íslandi og sérsmíðar golfkylfur eftir hentileika hvers og eins. 

Hægt verður að prufa nýjustu Titleist og Ping kylfurnar og fá fullkomna mælingu frá Birgi. Mælingin kostar 14.000kr og er þá mælt fyrir járn, hybrid og trékylfur, einnig er hægt að panta hálftíma mælingu á 7.000kr og þá er annað hvort mælt fyrir járn/hybrid eða driver/tré . Pantanir fara fram á jonheidar@gagolf.is - einstakt tækifæri fyrir kylfinga.

Nánar um Birgi á golfkylfur.is 

Samhliða mælingum hjá Bigga mun Pétur Óskar hjá ÍSAM koma og vera með demódaga og kynna allt það nýjasta bæði frá Ping og Titleist.

Við hvetjum alla GA félaga og aðra áhugasama að líta við upp á Jaðarsvöll og kynna sér málið.