Birgir V. Björnsson kylfusmiður með mælingar í golfhöllinni 11. og 12. mars

Birgir V. Björnsson, golfkylfusmiður og golfkennari mun koma norður 11. mars og vera með mælingar á golfkylfum hjá okkur á laugardeginum 11. og sunnudeginum 12. Hann verður frá 11-17 á laugardegi og 10-17 á sunnudegi. Birgir er sá færasti á sínu sviði hér á Íslandi og sérsmíðar golfkylfur eftir hentileika hvers og eins. 

Hægt verður að prufa nýjustu Titleist og Ping kylfurnar - hann verður með Ping G430 kylfurnar sem eru gríðarlega vinsælar núna og fá í leiðinni fullkomna mælingu frá Birgi. Mælingin kostar 15.900kr og er þá mælt fyrir járn, hybrid og trékylfur, einnig er hægt að panta hálftíma mælingu á 9.000kr og þá er annað hvort mælt fyrir járn eða trékylfur . Pantanir fara fram á jonheidar@gagolf.is og þarf að koma fram nafn og kennitala þess sem vill láta mæla sig - einstakt tækifæri fyrir kylfinga.

Nánar um Birgi á golfkylfur.is