Birgir V. Björnsson golfkylfusmiður með mælingar 15.feb í Golfhöllinni

Birgir V. Björnsson, golfkylfusmiður og golfkennari mun koma norður 15. febrúar og vera með mælingar á golfkylfum hjá okkur. Birgir er sá færasti á sínu sviði hér á Íslandi og sérsmíðar golfkylfur eftir hentileika hvers og eins. 

Hægt verður að prufa nýjustu Titleist og Ping kylfurnar og fá fullkomna mælingu frá Birgi. Mælingin kostar 12.000kr og er þá mælt fyrir járn, hybrid og trékylfur. Pantanir fara fram á jonheidar@gagolf.is - einstakt tækifæri fyrir kylfinga.

Nánar um Birgi á golfkylfur.is