Birgir V. Björnsson golfkennari og golfkylfursmiður á Akureyri 17-18 nóv

Birgir V. Björnsson, golfkylfusmiður og golfkennari mun koma norður helgina 17-18 nóvember og vera með mælingar á golfkylfum hjá okkur. Birgir er sá færasti á sínu sviði hér á Íslandi og sérsmíðar golfkylfur eftir hentileika hvers og eins. 

Hægt verður að prufa nýjustu Titleist og Ping kylfurnar og fá fullkomna mælingu frá Birgi. Mælingin kostar 12.000kr og er þá mælt fyrir járn, hybrid og trékylfur. Pantanir fara fram á skrifstofa@gagolf.is - einstakt tækifæri fyrir kylfinga.

Tilvalið að koma í mælingu og finna jólagjöfina handa sjálfum sér :)

Nánar um Birgi á golfkylfur.is