Bætum umgengni - boltaför, kylfurför, glompur

Sand í kylfuför á teigum, takk.
Sand í kylfuför á teigum, takk.

Nú er golfsumarið langt komið og við viljum minna kylfinga á að vera duglegir að ganga vel um völlinn.

Á par 3 holum vallarins eru box með sandi í og viljum við minna kylfinga á að setja sand í kylfuför á þeim teigum. 

Einnig viljum við árétta að hrífur eiga að vera ofan í glompum á vellinum, ekki við hlið þeirra.

Og að lokum er eilífðaráminningin um að gera við boltaför á grínum, bæði förin ykkar og annarra sem þið sjáið.

Það er sameiginlegt átak kylfinga og starfsmanna að ganga vel um völlinn okkar og hafa hann í sem besta ástandinu og biðjum við kylfinga um að huga vel að þessum hlutum á komandi dögum og vikum.