Bændaglíman á laugardaginn, 24. sept

Þá er loksins komið að Bændaglímu GA 2022.

Mótið verður á laugardaginn en ágætis veðurspá er þann daginn, 13 gráður og mögulega nokkrir dropar, ræst út af öllum teigum kl.10:00, mæting í skálann kl.9:30. 

Liðin verða gerð kunngjör á föstudegi og verður raðað í bláa og rauða liðið og hvetjum við kylfinga til að koma klæddur í litum síns liðs.

Það munu síðan tveir spila saman á móti öðrum tveimur, betri bolti með forgjöf og spiluð holukeppni. Forgjöf er hæst veitt 24 hjá körlum og 28 hjá konum. 

Gjaldið er 3.000kr á einstakling og er innifalið í því hamborgaraveisla hjá Jaðar Bistro að leik loknum. 

Skráning er á golfbox, jonheidar@gagolf.is eða í síma 462-2974.