Bændaglíma GA var spiluð síðastliðinn laugardag

Bændaglíma GA fór fram síðastliðinn laugardag í blíðskaparveðri.

Það voru 50 hressir GA félagar sem mættu til leiks og skemmtu sér vel í blíðviðrinu á Jaðri.

Að þessu sinni var liðunu skipt upp í gula liðið ( KA) og hvíta liðið (Þór).  Fyrirliðar voru Benedikt Guðmundsson sem leiddi hvíta liðið og Tryggvi Þór Gunnarsson sem fór fyrir gula liðinu.

Skemmst er frá því að segja að yfirburðir hvíta liðsins voru algerir og sáu þeir gulu aldrei til sólar.

Við þökkum öllum sem tóku þátt kærlega fyrir komuna og skemmtunina :)