Í flokki 12 ára og yngri var Andri Mikael á meðal keppanda.
Andri tók fyrsta daginn í höggleik þar sem hann spilaði á samtals 64 höggum en endaði jafn í 6. sæti.
Andri vann tvo jafna leiki á leið sinni í úrslitin. Hann lagði Ólaf Bjarna Þórðarson 3/2 í átta manna úrslitum og vann síðan Sigurð Markús Sigurðarson með sama mun í undanúrslitum.
Andri átti Ísak Hrafn úr GR í úrslitum sem varð spennandi og jöfn barátta en endaði í 3/1 sigur fyrir Ísak.

Í flokki 13-14 átti GA 5 keppendur.
Þar var líka spilað fyrsta daginn í höggleik en GA krakkanir náðum góðum árangri.
Bjarki Þór spilaði á samtals 55 höggum en var jafn í 1. sæti. Hann mætti síðan Bjarti Ægissyni úr GKG í 8 manna úrslitum og endaði sá æsi spennandi leikur 1/0 fyrir Bjarti
Kristófer Áki spilaði á samtals 56 höggum en var í 3 sæti. Hann mætti síðan Sveinbyrni úr GKG og vann góðan sigur 3/2. Kristófer fékk þá næst Bjart í undanúrslítum þar sem litlu mátti muna en Bjartur hafði betur 1/0 en Bjartu hélt áfram og vann síðan mótð sjálft. Kristófer mætti Jón Reykdal úr GKG í leiknum um bronsið en þar sigraði Jón 2/1.
Sesar Blær og Jóakim Elvin spiluðu á samtal 68 og 70 höggum en þeir komust ekki áfram í 8 manna úrslit.
Embla Sígrún spilaði á samtals 69 höggum en var jöfn í 6. sæti. Embla mætti Hranfhildi úr GKG í 8 manna úrslitum þar sem Hrafnhildur hafði betur 1/0
Í flokki 15-16 ára drengja átti GA 4 keppendur
Í þessum flokkum komust bara bestu 16 keppendur inn í mótið og farið var beint í 16 manna úrslit.
Ágúst Már mætti Jakob Þór úr GKG þar vann Ágúst sannfærandi sigur 4/3. Næst fékk hann Birgi Stein úr GR í 8 manna úrslitum en eftir spennandi leik átti Birgir betur 2/1.
Egill Örn mætti Emil Mána úr GKG en eftir spennandi leik endaði sigurinn ekki okkar meigin og vann Emil 2/0.
Barri Björgvinsson van Flosa Frey úr GK 5/3 strax á frysta degi. Barri fékk síðan Skaphéðin úr Nesklúbbnum en eftir erfiðan leik vann Barri 2/1. GA mennirnir Arnar Freyr og Barri mættust í undanúrslitum en eftir æsi spennandi og mjög jafnan leik hafði Arnar betur 1/0 gegn Barra. Barri tók síðan góðan sigur 2/1 gegn Hjalta Kristjáni úr GM og tryggði sig þar með bronsið.
Arnar Freyr vann Sebastian Blæ Ómarsson 2/1 í 16 manna úrslitum og mætti síðan Birni Breka úr GKG en Arnar vann þann leik sannfærandi 4/3. Í undanúrslitum lagði hann Barra Björgvinsson 1/0 og tryggði sér sæti í úrslitaleiknum.
Arnar Freyr mætti Birgi Steini úr GR í úrslitum um gullið. Eftir erfiðan og jafnan leik tók Arnar geggjaðan sigur 2/1 gegn Birgi og varð því Íslandsmeistari Unglinga í Holukeppni í flokki 15-16 ára pilta.

Í flokki 17-18 stúlkna átti GA 4 keppendur.
Ragnheiður Svava og Bryndís Eva mættu hvor öðrum í 16 manna úrslitum en eftir góðan leik hjá þeim báðum hafði Bryndís betur og vann leikin.
Bryndís mætti síðan Evu Fanney úr GKG í 8 manna úrslitum en Bryndís vann sanfærandi sigur 3/2.
Lilja Maren mætti Svandísi Evu í 16 manna úrslítum en Lilja vann sannfærandi sigur 3/1. Lilja fékk því næst Margréti Jónu úr GR í 8 manna úrslitum og enn og aftur vann hún góðan sigur 2/1. Lilja keppti á móti Pamelu Ósk úr GKG í undanúrlsitum en eftir langan og jafna leik hafði Pamela betur 1/0.
Björk Hannesdóttir mætti Ernu Steinu úr GR í 16 manna úrslitum og vann Björk góðan sigur 2/1. Næst mætti Björk hana Emblu Hrönn úr GKG en eftir erfiðar leik vann Björk 1/0.
Næst mættust Bryndís og Björk í undanúrslitum en þar eftir mjög jafnan leik hafði Björk betur á annari holu bráðabana. Bryndís mætti síðan GA manni í þriðja skiptið í mótinu en það var hún Lilja Maren og kepptu þær um bronsið en eftir enn einan jafnan og flottan leik hafði Bryndís betur eftir eins holu bráðabana.
Björk og Pamela mættust í leiknum um gullið en eftir erfiðan og flottan leik hjá Björk hafði Pamela betur og tryggði sér gullið.

Í flokki 17-18 ára drengja átti GA 3 keppendur
Maron Björgvinsson mætti Grétari Loga úr GM og vann Maron sannfærandi sigur 3/2. Næst mættust Gunnar Þór úr GKG og Maron í 8 manna úrslitum en þar hafði Gunnar betur 4/2 gegn Maroni. Gunnar fór síðan áfram til að vinna Íslandsmeistara titilinn.
Patrekur Máni mætti Stefán Jökli úr GKG í 8 manna úrslitum þar sem Patrekur vann góðan sigur 2/0. Patrekur mætti síðan Kristjáni Karl úr GM en eftir erfiðan og jafnan leik hafði Kristján betur 2/1. Kristján fór síðan áfram í úrslit gegn Gunnari.
Hafsteinn Thor mætti Valdimar Jaka úr GKG í fyrsta leik og vann hann sanfærandi 5/4. Hafsteinn mætti síðan Guðlaugi Þór úr Leyni í átta manna úrslitum og eftir jafnan leik hafði Hafsteinn betur 1/0. Hafsteinn mætti síðan Kristjáni Karl í undanúrslitum en eftir erfiðan leika vann Kristján 3/2. Hafsteinn mætti síðan Arnari Daða úr GKG í leiknum um bronsið en þar hafði Arnar betur 3/2.
Við erum gríðalega stolt af öllum GA krökkunum okkar sem tóku þátt í mótinu og óksum þeim til hamingju og góðs gengis á næstu mótum!