Árleg endurskoðun forgjafar

GSÍ hefur nú uppfært endurskoðaða forgjöf kylfinga.

Hjá þeim sem gerð hefur verið breyting kemur lína á forgjafaryfirlit viðkomandi kylfings

5.03 2013 Árleg endurskoðun forgjafar

Ef kerfið hefur ekki lagt til neina breytingu þá er forgjafaryfirlit óbreytt

Við viljum minna kylfinga á að skoða forgjöfina sína og ef þeir hafa einhverjar athugasemdir við þær breytingar sem gerðar hafa verið að hafa samband við forgjafarnefnd.

71,7% kylfinga GA er með óbreytta forgjöf

Breytingarnar voru á þann veg að 10 % kylfinga voru lækkaðir í fgj., 3,6 % hækkaðir en óbreytt hjá 71,7 %.

Við viljum minna þá kylfinga á sem eru með óvirka forgjöf að skila inn hringjum í vor til að virkja forgjöfina.

Þess má geta að í forgjafarmótum getur sá sem er með óvirka förgjöf ekki unnið til verðlauna, svo gott er að hafa hana ávallt virka.

Óvirk forgjöf eru þeir sem hafa ekki skilað inn fjórum hringjum til forgjafar á árinu sem var að líða. 10,4 % GA kylfinga er með óvirka forgjöf.

Í 4.3 % tilfella eru kylfingar með of fáar skorir fyrir mat.

Samkvæmt forgjafarkerfi EGA og GSÍ þarf að yfirfara forgjöf meðlima á landinu og athuga hvort að kylfingar séu með rétta forgjöf miðað við spilamennsku síðasta árs. Forgjöf getur hækkað eða lækkað allt að þrjú högg á milli ára. 

Sjá reglur um forgjöf á heimasíðu GSÍ www.golf.is