Árgjöld fyrir 2020 komin í heimabanka

Kæru GA félagar

Þá hafa verið stofnaðar kröfur fyrir árgjöldum 2020 í heimabanka ykkar. Sem fyrr sendum við ekki út greiðsluseðla, þeir birtast í heimabankanum ykkar.

Langar okkur því að hvetja ykkur félagar góðir að ganga frá ykkar árgjaldi um leið og kostur er. Við minnum á að þeir félagar sem hafa greitt árgjöldin sín fyrir 15. mars fá inneign upp á parkort á Klöppum æfingasvæði. Áfyllinguna má svo nálgast þegar Klappir opna næsta vor. 

Gjalddagar eru 9. desember, 9. janúar og 9. febrúar, eindagar 19.desember, 19. janúar og 19. febrúar.