Árgjöld 2019

Þeir meðlimir sem eiga eftir að greiða árgjöldin fyrir 2019 eða semja um greiðslur og biðjum við þá kylfinga um að hafa samband við skrifstofu GA í email á skrifstofa@gagolf.is eða í síma 462-2974. Einnig er hægt að koma upp á skrifstofu upp á Jaðri á virkum dögum og gera grein fyrir sér og greiða árgjöldin.

Þann 15. maí verða þeir kylfingar sem ekki hafa greitt eða samið um greiðslu teknir út af golf.is og geta því ekki skráð sig á rástíma.

Völlurinn kemur frábærlega undan vetri og trúum við því að golfsumarið 2019 verði magnað með þátttöku ykkar :)