Það var mikil stemming á Jaðri á laugardagskvöldið síðasta þegar 41. Arctic Open móti Golfklúbbs Akureyrar lauk formlega með kvöldskemmtun og lokahófi.
Í ár var eins og undanfarin ár fullt í mótið og var virkilega gaman að fylgjast með kylfingum kljást við tvo hörku keppnisdaga þar sem miðnætursólin ákvað að láta sig vanta í þetta skiptið. Í ár voru 54 erlendir kylfingar skráðir til leiks og komu þeir frá Bandaríkjunum, Kanada, Þýskalandi, Englandi, Hollandi, Svíðþjóð, Noregi og Danmörku.
Eins og svo oft áður var gleðin í fyrirrúmi hjá keppendum sama á hverju bjátaði. Hvort sem kylfingar voru í slæmu skyggni, týndu boltum eða blotnuðu í fæturnar var ávallt bros á vör. Allt utanumhald og umstang í kringum mótið gekk eins og best verður á kosið og var Jaðarsvöllur í toppstandi fyrir kylfinga.
Við hjá Golfklúbbi Akureyrar viljum þakka okkar styrktaraðilum fyrir mótið, Icelandair og Skógarböðunum. Einnig viljum við þakka sjálfboðaliðum og starfsfólki sem unnu hér hörðum höndum dagana fyrir mót og á meðan mótinu stóð. Við óskum verðlaunahöfum til hamingju með árangurinn og hlökkum til að taka á móti kylfingum á næsta ári, en mótið verður haldið dagana 24. - 26. júní.
Hér má sjá lista yfir verðlaunahafa í mótinu í ár:
Nándarverðlaun:
Fimmtudagur -
4.hola: Jim Smalley 23cm
8.hola: Guðmundur Sigurjónsson 187cm
11. hola: Bergþór Karlsson 223cm
14. hola: Steinmar H. Rögnvaldsson 188cm
18. hola: Steve Adams 46cm
Föstudagur -
4.hola: Kristín Ösp 70cm
8.hola: Richard Williams 313cm
11. hola: Guðmundur E. Lárusson 177cm
14.hola: Arnar Páll Guðmundsson 170cm
18.hola: Valgarð Thoroddsen 44cm
Punktakeppni m/forgjöf - Arctic Open meistari
1.sæti: Patrik Burda Svíþjóð 81 punktur
2.sæti: Ásgeir Andri Adamsson GA 78 punktar (betri seinni 18)
3.sæti: Óðinn Ómarsson GKF 78 punktar
Höggleikur án forgjafar
1.sæti: Tumi Hrafn Kúld GA 143 högg
2.sæti: Ingi Steinar Ellertsson GA 148 högg
3.sæti: Ottó Hólm Reynisson GA 148 högg
Höggleikur án forgjafar 55+ karlar
1.sæti: Guðmundur Sigurjónsson GA 152 högg
2.sæti: Jón Birgir Guðmundsson GA 157 högg
3.sæti: Ólafur Auðunn Gylfason GA 159 högg
Höggleikur án forgjafar konur
1.sæti: Halla Berglind Arnarsdóttir GA 168 högg
2.sæti: Eva Hlín Dereksdóttir GA 176 högg
3.sæti: Marcy McAuley Kanada 178 högg


