Arctic Open 2020 lokið

Nú er hinu árlega risamóti Arctic Open lokið. Mótið var spilað dagana 25. - 26. Júní og var glæsileg þátttaka í ár þar sem hvorki meira né minna en 224 manns tóku þátt. Það var blíðskaparveður eftir að hafgolunni lægði báða daga og mikil stemming um allan völl. Það sáust glæsilegir taktar hjá kylfingum og var sérstaklega gaman að sjá hve mikil gleði var meðal keppenda allt mótið.

Mót sem þetta væri ekkert án öflugra styrktaraðila, sjálfboðaliða og starfsfólks og viljum við þakka kærlega öllum sem komu að því að gera þetta mót eins glæsilegt og það var. Við viljum óska öllum keppendum til hamingju og þá sérstaklega þeim sem spiluðu sig til verðlauna. Hér að neðan má sjá alla verðlaunahafa mótsins og hlökkum við til að sjá keppendur á lokahófinu í kvöld, laugardag. 

Muna að húsið opnar kl 18:00 og matur byrjar kl 19:00.

Arctic Open 2020 Verðlaunahafar:

Drivekeppni - Miðvikudagur

Aron Elí Gíslason - 306.5 metrar

Nándarverðlaun

Fimmtudagur

4. hola: Jóhann Heiðar Jónsson 44cm 

8. hola: Bogi Nils Bogason 310cm 

11. hola: Hafliði Sævarsson 171cm 

14. hola: Friðjón Guðmundur Jónsson 143cm 

18. hola: Gunnar Már Sigurfinnsson 120cm 

Föstudagur

4. hola: Eyþór Hrafnar Ketilsson 217cm 

8. hola: Reynir Valbergsson 160m 

11. hola: Knútur Þórhallsson 115cm 

14. hola: Arnar Árnason 125cm 

18. hola: Skúli Arnarson 98cm 

Punktakeppni með forgjöf

1. Eygló Birgisdóttir   84 punktar 

2. Þórarinn Valur Árnason   81 punktar

3. Bjarni Þórhallsson   79 punktar 

Höggleikur

1. Ólafur Auðunn Gylfason 146 högg  

2. Jón Þór Gunnarsson     148 högg (betri seinni dag)  

3. Víðir Steinar Tómasson  148 högg

Höggleikur 55+

1. Jón Þór Gunnarsson 148 högg Bose 

2. Gauti Grétarsson 156 högg 

3. Ögmundur Máni Ögmundsson 161 högg 

Höggleikur Konur

1. Anna Jódís Sigurbergsdóttir 162 högg  

2. Hrafnhildur Guðjónsdóttir 168 högg 

3. Unnur Elva Hallsdóttir 174 högg (betri seinni hring)

Liðakeppni - 228 punktar

Víðir Steinar Tómasson 

Jón Þór Gunnarsson

Eygló Birgisdóttir 

Rúnar Tavsen