Arctic Open 2020 24-27 júní

Arctic Open 2020 verður haldið dagana 24.-27. júní þetta sumarið. Mótið verður hið glæsilegasta í ár og eru skipuleggjendur langt komnir með skemmtidagskrá og glæsilegan FJ fatnað sem verður í teiggjöf. 

Mótið í fyrra var frábært og var það spilað í góðru veðri við flottar aðstæður á Jaðarsvelli. 

Skráning í mótið er í fullum gangi og hafa þegar ríflega 180 þátttakendur skráð sig til leiks, vegna Covid-19 veirunnar þurftu fjölmargir erlendir kylfingar að fresta þátttöku sinni en allt stefndi í metþátttöku erlendra kylfinga fyrir veiru. Skráning fer fram á skrifstofa@gagolf.is eða í síma 462-2974

Hér má sjá þrjú myndbönd sem gerð voru í kringum mótið árið 2018:
Skratch er youtube myndgerðarmaður sem kom í heimsókn árið 2018 og gerði þetta flotta myndband :https://www.youtube.com/watch?v=Fc-nW_CNDKY&t=1s

TheWeekendGolfer er einnig þekktur fyrir sín youtube myndbönd og gerði þetta skemmtilega myndband: https://www.youtube.com/watch?v=7NuZG9YJyIE&t=5s

Við hjá GA fengum Tjörva frá GS-production til að gera þetta myndband fyrir okkur frá mótinu árið 2018: https://www.youtube.com/watch?v=rr0sr2uUVRg

Við hjá GA hvetjum að sjálfsögðu sem flesta til að taka þátt í þessu skemmtilega móti en markmið okkar er að gera það eins glæsilegt og hægt er.