Árangur Kvennasveitar GA

Kvennasveit Golfklúbbs Akureyrar gerði sér ferð til Stykkishólms og tók þátt í 2. deild Sveitakeppni GSÍ. Í mótinu voru leiknir tveir hringir, og var spilaður höggleikur, þar sem fjögur bestu skorin töldu sitt hvorn daginn, hjá öllum liðum. Stelpurnar okkar náðu ágætis árangri, en þær höfnuðu í 3. sæti, og voru aðeins tveimur höggum frá því að komast upp um deild. Árangur stelpnanna okkar var eftirfarandi:

Stefanía Elsa Jónsdóttir - 84 högg og 87 högg

Petrea Jónadóttir - 92 högg og 92 högg

Guðlaug María Óskarsdóttir - 101 högg og 89 högg

Eva Hlín Dereksdóttir - 105 högg og 99 högg

Anna Einarsdóttir - 111 högg og 103 högg

 

Kvennasveit 2013