Andrea Ýr og Tumi Hrafn Akureyrarmeistarar 2026

Akureyrarmótinu í golfi lauk á laugardaginn í sól og hvassvirði og var margt um manninn á pallinum þegar síðustu kylfingar komu inn. Kylfingar þurftu að berjast við vind alla dagana en í staðinn fengu þeir sól og 18-20 stiga hita á móti og nutu kylfingar þess að spila Jaðarsvöll í flottu golfveðri og í algjöru toppstandi. 

Það var vel mætt í mótið en 178 keppendur voru skráðir til leiks og var spenna í mörgum flokkum alveg fram að loka holunum. 

Það fór svo að Andrea Ýr Ásmundsdóttir og Tumi Hrafn Kúld sigurðu meistaraflokkana. Andrea Ýr spilaði síðustu tvo hringina á samtals þremur höggum fyrir pari og fór svo að hún endaði með 8 högga forustu á Björk sem varð í 2. sæti. Andrea varð Akureyrarmeistari í sjötta sinn en aðeins Inga Magnúsdóttir hefur orðið oftar Akureyrarmeistari í kvennaflokki en hún vann 10 ár í röð frá 1979-1988. Tumi Hrafn varð Akureyrarmeistari í annað sinn en hann sigraði með þriggja högga mun. Tumi lék þriðja hring mótsins á fjórum höggum undir pari og skóp sigurinn með þeim hring en Hafsteinn Thor kom í hús á 69 höggum á lokadeginum og tryggði sér annað sætið. 

Við hjá GA erum gríðarlega þakklát fyrir þá keppendur sem tóku þátt og var frábært að sjá áhuga GA félaga á mótinu í ár. Úrslit úr öllum flokkum má nálgast hér
Hér að neðan má svo sjá efstu þrjú sætin í öllum flokkum:

Meistaraflokkur karla
1.sæti: Tumi Hrafn Kúld +7 75-77-67-72
2.sæti: Hafsteinn Thor Guðmundsson +10 76-78-71-69
3.sæti: Patrik Róbertsson +15 74-73-76-76
3.sæti: Víðir Steinar Tómasson +15 77-73-71-78

Meistaraflokkur kvenna
1.sæti: Andrea Ýr Ásmundsdóttir +18 81-76-72-73
2.sæti: Björk Hannesdóttir +26 78-73-77-82
3.sæti: Kara Líf Antonsdóttir +39 83-82-76-80

1.flokkur karla
1.sæti: Þorsteinn Már Þorvaldsson +35 77-81-80-81
2.sæti: Gunnar Aðalgeir Arason +36 79-79-80-82
3.sæti: Richard Eiríkur Taehtinen +42 83-81-83-79

1.flokkur kvenna
1.sæti: Ragnheiður Svava Björnsdóttir +43 86-78-80-83
2.sæti: Embla Sigrún Arnsteinsdóttir +59 87-81-85-90

2.flokkur karla
1.sæti: Valdimar Þengilsson +56 82-85-87-86
2.sæti: Friðfinnur Gísli Skúlason +57 83-82-86-90
3.sæti: Helgi Gunnlaugsson +60 85-85-83-91

2.flokkur kvenna
1.sæti: Einrún Ósk Magnúsdóttir +88 96-88-93-95
2.sæti: Lísbet Hannesdóttir +118 104-91-100-101
3.sæti: Ragnhildur Jónsdóttir +132 102-98-110-106

3.flokkur karla
1.sæti: Ólafur Helgi Rögnvaldsson +79 93-87-89-94
2.sæti: Einar Ingimundarson +82 89-92-95-90
3.sæti: Arnar Páll Guðmundsson +83 95-86-89-97

3.flokkur kvenna
1.sæti: Linda Rakel Jónsdóttir +82 95-101-99
2.sæti: Páley Borgþórsdóttir +102 107-105-103
2.sæti: Karólína Birna Snorradóttir +102 106-101-108

4.flokkur karla
1.sæti: Stefán Bjarni Gunnlaugsson +91 100-102-102
2.sæti: Arnþór Gylfi Finnsson +95 110-105-93
2.sæti: Friðrik Tryggvi Friðriksson +95 103-97-108

4. flokkur kvenna
1.sæti: Kara Rún Árnadóttir Schiöth 27 punktar
2.sæti: Eydís Elva Guðmundsdóttir 20 punktar
3.sæti: Álfheiður Atladóttir 18 punktar
3.sæti: Margrét Jóna Kristmundsdóttir 18 punktar

5. flokkur karla
1.sæti: Hlynur Friðriksson 33 punktar
2.sæti: Ólafur Elvar Júlíusson 22 punktar
3.sæti: Magnús G Gunnarsson 21 punktur

Öldungar karlar 50+ 
1.sæti: Guðmundur Sigurjónsson +10 72-77-74
2.sæti: Ólafur Auðunn Gylfason +12 73-74-78
3.sæti: Konráð Vestmann Þorsteinsson +15 75-79-74

Öldungar konur 50+ 
1.sæti: Birgitta Guðjónsdóttir +44 82-85-90
2.sæti: Guðrún Gísladóttir +47 87-83-90
3.sæti: Fanný Bjarnadóttir +49 85-87-90

Öldungar karlar 70+
1.sæti: Heimir Jóhannsson +15 76-78-74
2.sæti: Guðmundur E. Lárusson +41 80-87-87
3.sæti Jón Halldórsson +48 90-85-86

14 ára og yngri
1.sæti: Kristófer Áki Aðalsteinsson -3 66-73-71
2.sæti: Bjarki Þór Elíasson +23 84-75-77
3.sæti: Sesar Blær Gautason +29 87-79-76
3.sæti: Andri Mikael Steindórsson +29 80-81-81