Andrea Ýr hefur leik með íslenska kvennalandsliðinu í dag

mynd/seth@golf.is
mynd/seth@golf.is

Íslenska kvennalandsliðið í golfi hefur leik í dag á Evrópumótinu í liðakeppni en leikið er á hinum sögufræga Royal County Down GC á Norður- Írlandi. Sex stúlkur skipa kvennalandslið Íslands og erum við hjá GA gríðarlega stolt af því að Andrea Ýr sé ein af þeim. Andrea hefur spilað feikna gott golf í sumar og er þetta enn ein rósin í hnappagatið hjá þessum flotta kylfing.

Hægt er að fylgjast með gangi mótsins hér: https://www.ega-golf.ch/content/european-ladies-team-championship 

Við hjá GA óskum Andreu og hinum stúlkunum í liðinu góðs gengis og munum flytja ykkur frekari fregnir af gangi mála í Norður- Írlandi þegar líður á mótið.