AM - AM liðakeppni GA - Úrslit

Metþátttaka 21 lið skráð til keppni.

Veðrið lék við keppendur, sunnan átt og hlýindi.

Uppselt var í þetta mót eins og verið hefur síðustu 2 ár, 21 lið skráð til keppni. Mikil stemming er alltaf í þessu móti sem nú var haldið í 4 sinn.

Am - Am liðakeppni GA er mót sem hóf göngu sína 2008 og hefur verið haldið í september ár hvert, til styrktar afreksstefnu Golfklúbbsins. Golfklúbbur Akureyrar stendur fyrir þessu golfmóti til að standa straum að kostnaði við þátttöku okkar í sveitakeppnum GSÍ og þátttöku betri kylfinga okkar í stigamótum og Landsmótum.

Um er að ræða liðakeppni - fyrirkomulagið er þannig að þrír kylfingar skrá sig sem sveit og GA leggur til fjórða manninn í hverja sveit og er þar um að ræða kylfing með lága forgjöf. Sveitirnar draga um sinn fjórða mann. Í keppninni telja tvö bestu skorin (höggleikur) á hverri holu. Leikið er með forgjöf.

Sigurvegarar á 126 höggum voru Eistun, þ.e. Valmar Väljaots, Brynja Herborg Jónsdóttir, Anton Ingi Þorsteinsson og þeirra "prói" var Þorvaldur Jónsson, allir í GA

Í 2. sæti á 128 höggum voru Óskar Jóel Jónsson, Kjartan Atli Ísleifsson, Kristján Benedikt Sveinsson og þeirra "prói" var Ævarr Freyr Birgisson, allir í GA þeirra lið hét Kjós & Ævarrr

Í 3. sæti á 129 höggum voru Jón Ingvar Þorsteinsson, Allan Peng, Ingi Torfi Sverrisson allir úr GA og þeirra "prói" var Bergur Rúnar Björnsson úr GÓ

Veitt voru nándarverðlaun á 18. braut og var Óskar Jóel 83 cm frá.

Boðið var upp á glæsilegan málsverð að móti loknu og gerðu keppendur góðum veitingum góð skil.

Vill Golfklúbburinn þakka Vífilfelli og Norðlenska fyrir frábæran stuðning við mótið.