Allir að skrá sig í Styrktarmót barna og unglinga á morgun

GA stendur vel við bakið á börnum og unglingum
GA stendur vel við bakið á börnum og unglingum

Nú eru aðeins örfá pláss eftir laus í Styrktarmót barna og unglinga sem haldið verður á morgun. Veðurspáin fyrir morgundaginn er geggjuð og völlurinn tekur heldur betur vel á móti vætunni sem við fengum um daginn og blíðunni sem er núna. Eins og áður hefur verið sagt kostar litlar 3500kr í þetta mót og rennur allt til barna og unglingastarfs GA. Skráningarfrestur rennur út klukkan 17, hægt er að skrá sig á golf.is eða í síma 462-2974!

Hér minnum við á þau glæsilegu verðlaun sem eru í boði:

Flott nándarverðlaun á 18. holu.

1. JBL bluetooth hátalari

2. Þrír sundmiðar í Sundlaug Akureyrar

3. Þrír sundmiðar í Sundlaug Akureyrar

4. Gjafabréf hjá Vídalín veitingum

5. Fjórir sundmiðar

 

Sæti 1-3 í höggleik og punktakeppni:

1.sæti - Gjafabréf á Hlíðavöll (GM) spil fyrir tvo - par boltakort

2.sæti - Golfpoki - gjafabréf hjá Vídalín veitingum

3.sæti - Vegleg fartölvutaska frá Dell - par boltakort

 

9.sæti gjafabréf í sæfara fyrir tvo til Grímseyjar 

23.sæti gjafabréf í kennslu hjá Stefaníu

38 sæti gjafabréf í kennslu hjá Heiðar Davíð

45 sæti titleist derhúfa

55 sæti gjafabréf tveir hringir hjá Keili

60 sæti titleist derhúfa

Næst neðsta sæti gjafabréf í kennslu hjá Stefaníu 

Neðsta Sæti gjafabréf í kennslu hjá Heiðar Davíð