Afmælishóf GA 75 ára - Heiðursveitingar

Fjöldi gesta heiðraði klúbbinn í afmælishófi í gær.

Fjöldi félaga og annarra gesta mættu í  afmælishóf Golfklúbbs Akureyrar í tilefni 75 ára afmælis klúbbsins boðið var upp á léttar veitingar ásamt afmælistertu. Veislustjóri var Sunna Borg leikkona.

Formaður Golfklúbbsins Halldór Rafnsson bauð gesti velkomna og flutti stutt ávarp. Forseti bæjarstjórnar Geir Kristinn Aðalsteinsson, forseti Golfsambands Ísland Jón Ásgeir Eyjólfsson, Garðar Eyland framkvæmdastjóri Golfklúbbs Reykjavíkur, Þóra Leifsdóttir frá ÍBA, Inga Magnúsdóttir fyrir hönd Golfklúbbsins Keilis ásamt fleirum fluttu ávörp og færðu klúbbnum góðar gjafir.

Vill stjórn GA þakka öllum þeim sem sendu kveðjur og góðar gjafir í tilefni afmælisins kærlega fyrir.

 

Á tímamótum sem þessum er til siðs að heiðra nokkra félaga sem starfað hafa ötilllega fyrir klúbbinn á einn eða annan hátt.

Eftirtaldir aðilar fengu silfurmerki klúbbsins sem viðurkenningu fyrir störf þeirra fyrir klúbbinn á undangengnum árum, Ólafur Búi Gunnlaugsson, Hreiðar Gíslason, Rafn Kjartansson, Stefán Magnús Jónsson, Jón Birgir Guðmundsson, Ómar Pétursson, María Daníelsdóttir, Jón Smári Friðriksson, Jóhann Jóhannsson, Erla Adólfsdóttir

Eftirtaldir aðilar fengu gullmerki  Golfklúbbs Akureyrar fyrir einstaklega góð störf á vegum klúbbsins í gegnum árin.

Sævar Gunnarsson, hann hefur haft veg og vanda sl. 20 ár við uppgræðslu skóglendis að Jaðri sem hefur tekist frábærlega vel eins og sjá má hvert sem litið er á vallarstæðinu.

Stefán Haukur Jakobsson, “Dúddesen”  hefur verið ötull við ræsingar í mótum á vegum klúbbsins og er hann sennilega  einn alvinsælasti  sem slíkur á landinu, einnig hefur hann verið sérlega vinnusamur og hjálpfús í gegnum tíðina og má segja að hann hafi hreinlega haldið úti vetrardagskrá fyrir klúbbfélaga hvað varðar æfingar innanhúss í Golfbæ.

Hallgrímur Arason hefur haldið mikla tryggð við Golfklúbb Akureyrar og ber þar hæst að í 19 ár hefur  fyrirtæki hans verið með mót í samvinnu við klúbbinn en það er hið vinsæla Bautamót.

Skúli Ágústsson hefur eins og Hallgrímur verið tryggur golffélagi og fyrirtæki hans Höldur hefur í samvinnu við G.A. verið með eitt alvinsælasta mót landsins Mitshubisi Open sem nú hefur verið haldið síðan 1987, mótið er haldið núna dagana 27.- 28. ágúst nk. og er að venju löngu uppselt í það mót.

Golfklúbbur Akureyrar vill þakka þessum heiðursmönnum fyrir þeirra framlag til klúbbsins og vonar að við fáum að njóta krafta þeirra bæði í leik og starfi um ókomin ár.

Jón Ásgeir Eyjólfsson forseti Golfsambandi Ísland  heiðraði eftirtalda félaga einnig fyrir framlag þeirra  og störf fyrir klúbbinn. Sævar Gunnarsson og Hallgrímur Arason fengu silfurmerki sambandsins og Haukur Jakobsson gullmerki GSÍ.