Æfingasvæðið, Klappir, alveg lokaðar vegna framkvæmda

Vegna framkvæmda verður æfingasvæðið Klappir lokað frá og með deginum í dag og út vikuna.

Lokunin er nauðsynleg til að tryggja sem besta nýtingu á vinnu þeirra starfsmanna sem sinna framkvæmdum á svæðinu. Með því fá þeir óskertan vinnudag til að vinna að jarðvegsskiptum og öðrum umbótaverkefnum, án þess að þurfa að verja tíma í að hreinsa og tína svæðið á hverjum morgni.

Við þökkum félagsmönnum og gestum fyrir sýndan skilning meðan á framkvæmdum stendur. Upplýsingar um opnun æfingasvæðisins verða birtar um leið og þær liggja fyrir.