Æfing hjá Norðurlandsúrvali

Norðurlandsúrval er skipað fremstu og efnilegustu kylfingum á norðurlandi

Úlfar Jónsson landsliðsþjálfari og Gauti Grétarsson sjúkraþjálfari heimsóttu Dalvík í tilefni af æfingu Norðurlandsúrvals. Æfingar fyrir þennan hóp eru fyrirhugaðar u.þ.b. tvisvar sinnum í mánuði

Þrettán krakkar á aldrinum 13-17 ára voru á æfingunni, og fór æfingin fram í  inniaðstöðu GHD að þessu sinni. Aðal áhersla var á líkamsþjálfun og líkamsmælingar með kine og k-vest búnaði sem Gauti hefur notað í sérhæfðri líkamsþjálfun sinni fyrir kylfinga. Búnaður Gauta mælir ýmsa hluti eins og tímaröðun, vöðvabeitingu og styrk, meðan á golfsveiflunni stendur. Í kjölfarið var hægt að sjá hvers konar líkamsæfingar leikmaður þurfti á að halda til að bæta sína tækni.

Eftir hádegi var líkamsþjálfun þar sem þátttakendur lærðu gagnlegar og sérhæfðar æfingar fyrir golfara. Í lok dags var boðið uppá fyrirlestur um líkamsþjálfun afrekskylfinga, mataræði, sem og afreksstefnu GSÍ og viðmið. Einnig var tekið til hliðsjónar og rætt hvað það er sem einkennir afreksíþróttafólk.

Heimsóknin heppnaðist vel, en mikill áhugi og góður efniviður er til staðar. Auk þess njóta norðanmenn mjög góðrar inniaðstöðu á Dalvík og Akureyri. Viðstaddir æfingarnar voru þjálfarar leikmanna í hópnum, auk fjölmargra foreldra og aðstandenda sem hlýddu á fyrirlestrana.

Frétt www.golf.is