Aðalfundur GA, þriðjudaginn 14. desember

Ágætu GA félagar.

Aðalfundur Golfklúbbs Akureyrar vegna starfsársins 2020 - 2021 verður haldinn þriðjudaginn 14. desember klukkan 20:00. Við biðjum þá félaga sem ætla sér að sitja fundinn að skrá sig á hann með því að senda tölvupóst á jonheidar@gagolf.is. Í tölvupóstinum þarf að koma fram nafn og kennitala þess sem hyggst sitja fundinn. Við fylgjumst með þeim reglum sem settar verða í sambandi við viðburði og munum láta vita ef fundargestir þurfa að framvísa neikvæðu hraðprófi. 

Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:

  1. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.
  2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis
  3. Umræður og atkvæðagreiðsla um tillögur samkvæmt 9 grein
  4. Kosning stjórnar og varamanna í stjórn
  5. Kosning og/eða tilnefning í aðrar nefndir, sbr. 8 grein
  6. Kosnir tveir endurskoðendur og einn til vara
  7. Ákvörðun árgjalds skv. 4 grein
  8. Lagabreytingar
  9. Önnur mál

Hvetjum við ykkur endilega til að skoða skýrslu stjórnar og ársreikninginn þegar það kemur inn á heimasíðu GA. 

Starfsfólk GA.