Aðalfundur GA 15. desember kl.20:00

Ágætu GA félagar.

Aðalfundur Golfklúbbs Akureyrar vegna starfsársins 2021 - 2022 verður haldinn fimmtudaginn 15. desember klukkan 20:00. Við viljum að sjálfsögðu sjá sem flesta GA félaga á fundinum þar sem farið verður yfir liðið rekstarár og fleira. 

Dagskrá aðalfundar er eftirfarandi:

  1. Skýrsla stjórnar um störf og framkvæmdir á liðnu starfsári.
  2. Endurskoðaðir reikningar lagðir fram til samþykkis
  3. Umræður og atkvæðagreiðsla um tillögur samkvæmt 9 grein
  4. Kosning stjórnar og varamanna í stjórn
  5. Kosning og/eða tilnefning í aðrar nefndir, sbr. 8 grein
  6. Kosnir tveir endurskoðendur og einn til vara
  7. Ákvörðun árgjalds skv. 4 grein
  8. Lagabreytingar
  9. Önnur mál

Hvetjum við ykkur endilega til að skoða skýrslu stjórnar og ársreikninginn þegar það kemur inn á heimasíðu GA. 

Starfsfólk GA.