80 ára afmæli Golfklúbbs Akureyrar

Þann 19. ágúst síðastliðinn varð GA 80 ára.

Í tilefni af því verður haldið skemmtilegt afmælisgolfmót næstkomandi sunnudag, 30. ágúst.  Mótið er öllum opið og fer skráning fram á golf.is.

Þar verður ræst út af öllum teigum kl. 10:00 og að móti loknu verður afmælisveisla og eru allir velkomnir upp á Jaðar í kaffi og kökur :)

Hefst afmælisveislan kl. 15:00.