7 holur opnar á Jaðarsvelli!

Bongóblíða.
Bongóblíða.

Eins og glöggir GA félagar hafa tekið eftir hefur veðurfar verið með besta móti undanfarna daga og vikur. Völlurinn hefur tekið því vel og höfum við því ákveðið að opna holur 1-4 og 7-9 fyrir félagsmenn okkar. 

Við notum vetrargrín og aðeins eru ein teigmerki á hverri braut, á rauðum teigum, nema á 9. holu þar sem teigurinn er inn á brautinni. 

Við biðjum að sjálfsögðu félagsmenn um að ganga vel um völlinn og huga vel að því að hann er blautur og viðkvæmur á þessum árstíma.

Endilega kíkið upp á völl og njótið þess að spila golf í góðu veðri.