Við opnum holur 5 og 6 um helgina en undanfarnar viku hafa starfsmenn okkar unnið mikla drenvinnu á 6. braut sem á að hjálpa brautinni að taka við og losa hraðar jarðvegs- og yfirborðsvatn.
Brautirnar líta vel út og flatirnar líka en veðurfar undanfarna daga hefur ekki hjálpað til, vætusamt og kalt. Við biðjum kylfinga um að ganga vel um brautirnar og hafa í huga blautustu svæðin þegar högg eru slegin.
Þá er verið að vinna í nýjum 45 teig á 6. braut ásamt því standa til endurbætur á teig 54 en á meðan verða fremstu teigar á brautinni og teigur 54 og 52 saman á teig 52.
Eftir helgi munum við loka 11. holu en við ætlum í vinnu á flötinni til að ná grasinu sem sett var á stækkunina á flötinni í fyrra í betra form. Sáð verður í flötina og hún dúkalögð. Við áætlum að gefa henni 1-2 vikur en það fer eftir veðurfari, við munum auglýsa aftur þegar við opnum 11. holu.
Gaman hefur verið að sjá fjöldan sem hefur lagt leið sína á Jaðarsvöll fyrstu vikuna eftir opnun og hefur umgengni almennt verið góð um völlinn. Það eru allir spenntir að fara í golf eftir langan vetur og þurfum við að hjálpast að við að hafa völlinn okkar í sem besta standinu í sumar. Kylfingar þurfa að vera duglegir við að gera við boltaför á flötum, kylfuför á brautum og ganga vel um teiga og önnur svæði.