3 laus sæti í Hatta- og pilsamót GA kvenna

Það voru að losna þrjú sæti í hatta- og pilsamóti GA kvenna sem fer fram á föstudaginn næsta. Hægt er að fullyrða um að mótið er eitt það skemmtilegasta sem GA konur hafa tök á að keppa í.

Kæru golfgellur!

Það er stórafmæli framundan! Föstudaginn 26. júlí n.k. verður 30. Hatta- og pilsamótið haldið að Jaðri. Mótið er innanfélagsmót og er opið öllum félagskonum í GA og mæta allar í sínu fínasta pússi; kjól/pilsi og með hatt.  

Að þessu sinni verður 9 holu punktakeppni og verðlaun fyrir 1. – 3. sætið og jafnvel eitthvað fleira J

Mæting er kl. 17:00 og verður ræst út af öllum teigum klukkan 17:30. Mótsgjaldið er 5.500 kr. og greiðist á staðnum í peningum (enginn posi). Innifalið í mótsgjaldinu er dýrindis veisluborð að hætti Jóns Vidalín. Skráning er á golf.is en einnig er hægt að hringja upp í golfskála til að láta skrá sig – síðasti skráningardagur er þriðjudagurinn 23. júlí. Ath. takmarkaður fjöldi, fyrstar skrá – fyrstar fá :)

Aðeins 48 konur komast í mótið!

Skráning fer fram á golf.is eða í síma 462-2974