Landslið Íslands hafa verið valin fyrir Evrópumótið í liðakeppni. Öll landsliðin leika í efstu deild. Evrópumót kvenna fer fram í Írlandi og karlaliðið leikur í Eistlandi. Stúlknaliðið leikur í Sviss og piltalandsliðið leikur á Spáni.
Mótin fara fram dagana 7. - 11. júlí
Við hjá GA erum með þrá kylfinga í þessum landsliðshópum.
Evrópumót karla í Eistlandi: Veigar Heiðarsson
Evrópumót stúlkna í Sviss: Bryndís Eva Ágústsdóttir, Lilja Maren Jónsdóttir
Við hjá GA óskum krökkunum okkar innilega til hamingju með valið og óskum þeim góðs gengis.