GA börn og unglingar voru rétt í þessu að ljúka sólarhringsgolfi í hermi til að safna fyrir æfingaferð og golfmótum sumarsins.
Upphafshöggið var slegið föstudaginn 23. janúar klukkan 16:00 og svo var spilað í golfhermi inniaðstöðunnar á Jaðri til klukkan 16:00 daginn eftir.
Hópurinn stefndi á að klára að minnsta kosti 400 holur en þau gerðu gott betur og léku 747 holur á 41 mismunandi velli í fimm heimsálfum.
Hópurinn fór einu sinni á erni og 84 sinnum á fugli.
Einnig voru margir sem komu og spreyttu sig í leiknum Næst holu þar sem slegið var af rauðum teig á 18. holu á Jaðarsvelli. Næstur holu var Ottó Hólm Reynisson en hann var aðeins 0,3 metra frá holu. Engin hola í höggi kom að þessu sinni.
Hópurinn þakkar öllum þeim sem styrktu þau en fjölmargir einstaklingar og fyrirtæki veittu þeim liðsinni við að láta þetta raungerast.
