17 krakkar frá GA á Íslandsmóti unglinga í holukeppni

Ágúst, Maron, Arnar og Egill eru allir meðal keppenda.
Ágúst, Maron, Arnar og Egill eru allir meðal keppenda.

Íslandsmót unglinga í holukeppni fer fram á Selfossi þessa dagana og eru 17 efnilegir GA krakkar mættir til að spila golf og reyna við verðlaun.

Við hjá Golfklúbbi Akureyrar erum gríðarlega stolt af þessum fjölda og óskum okkar efnilegu kylfingum góðs gengis. Hér er hægt að fylgjast með stöðu mála í mótinu: 

Keppendur GA eru eftirfarandi: 

13-14 ára stúlkur: Embla Sigrún Arnsteinsdóttir
17-18 ára stúlkur: Björk Hannesdóttir, Bryndís Eva Ágústsdóttir, Lilja Maren Jónsdóttir, Ragnheiður Svava Björnsdóttir
12 ára og yngri drengir: Andri Mikael Steindórsson
13-14 ára drengir: Bjarki Þór Elíasson, Jóakim Elvin Sigvaldason, Kristófer Áki Aðalsteinsson, Sesar Blær Gautason
15-16 ára drengir: Arnar Freyr Viðarsson, Ágúst Már Þorvaldsson, Barri Björgvinsson, Egill Örn Jónsson
17-18 ára drengir: Hafsteinn Thor Guðmundsson, Maron Björgvinsson, Patrekur Máni Ævarsson