Golfmót Þórs laugardaginn 11. júní

Nú er allt á blússandi siglingu hjá okkur hér á Jaðri, fengum góða vætu í nótt og flatirnar farnar að líta ansi vel út :)

Þórsmótið í golfi verður svo haldið á laugardaginn og þar eru glæsileg verðlaun í boði og allir velkomnir. Skráning á golf.is

Klappir verða að öllum líkindum opnaðar seinni partinn á föstudaginn þannig að hægt verður að æfa vel áður en spilað verður í Þórsmótinu :)

Hlökkum til að sjá sem flesta.